Psalms 59

1Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð, þá er Sál sendi menn og þeir héldu vörð um húsið til þess að drepa hann. 2Frelsa mig frá óvinum mínum, Guð minn, bjarga mér frá fjendum mínum. 3Frelsa mig frá illgjörðamönnunum og hjálpa mér gegn morðingjunum, 4því sjá, þeir sitja um líf mitt, hinir sterku áreita mig, þótt ég hafi ekki brotið eða syndgað, Drottinn. 5Þótt ég hafi eigi misgjört, hlaupa þeir að og búast til áhlaups. Vakna þú mér til liðveislu og lít á! 6En þú, Drottinn, Guð hersveitanna, Ísraels Guð, vakna þú til þess að vitja allra þjóðanna, þyrm eigi neinum fráhverfum syndara. [Sela] 7Á hverju kvöldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina. 8Sjá, það freyðir úr munni þeirra, sverð eru á vörum þeirra, því að _ ,,Hver heyrir?`` 9En þú, Drottinn, hlærð að þeim, þú gjörir gys að öllum þjóðunum. 10Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín. 11Guð kemur í móti mér með náð sinni, Guð lætur mig sjá óvini mína auðmýkta. 12Drep þá eigi, svo að lýður minn gleymi eigi, lát þá reika fyrir veldi þínu og steyp þeim af stóli, þú Drottinn, skjöldur vor, 13sakir syndar munns þeirra, orðsins af vörum þeirra, og lát þá verða veidda í hroka þeirra, og sakir formælinga þeirra og lygi, er þeir tala. 14Afmá þá í reiði, afmá þá, uns þeir eru eigi framar til, og lát þá kenna á því, að Guð ríkir yfir Jakobsætt, allt til endimarka jarðar. [Sela] 15Á hverju kveldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina. 16Þeir reika um eftir æti og urra, ef þeir verða eigi saddir. 17En ég vil kveða um mátt þinn og fagna yfir náð þinni á hverjum morgni, því að þú hefir gjörst háborg mín og athvarf á degi neyðar minnar. [ (Psalms 59:18) Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín, minn miskunnsami Guð. ]
Copyright information for Icelandic